Tuesday, May 10, 2005
Blessuð!!!

Já góðan daginn... hvað er að frétta af ykkur?? Ég segi bara allt fínt, á að vera að læra undir próf en er semsagt ekki að því, þið vitið hvernig þetta er!!! En ég á bara eitt próf eftir í uppáhalds classanum mínum músík... ég bara kann ekki neitt í þessum tíma, þetta er ekkert smá erfitt fyrir mig, mér finnst öll þessi tónlist eins og glætan að ég kunni að telja einhvern takt.. guð hjálpi mér þetta er svo leiðinlegt!!! :( En þarf bara að pína mig í einn og hálfan dag í viðbót svo er ég bara á heimleið og hlakka ekkert smá til að knúsa ykkur öll og sjá bumbusystur mínar... hehe þær eru pottþétt ýkt sætar með bumburnar útí loftið. Svo verður spennandi að fara á æfingu með Breiðabliki.. hef ekki æft þar síðan í ágúst... spennandi tímar fram undan!!!! En maður getur aldrei verið fullkomnlega sáttur en svona er lífið bara!!!

Á seinasta þriðjudag fórum við Erna Ferna í verzlunarferð sem heppnaðist ekki betur en það að ég keypti bara á sjálfan mig svo það verður farið aftur á föstudaginn til að kaupa nokkrar gjafir handa sumum!!!! Svo bauð Jacopo ítalinn minn mér út að borða á föstudag og við tókum Ernu og Radu rúmena með okkur.... fórum auðvita á ítalskan veitingastað, það kemur ekkert annað til greina hjá honum. Svo röltum við bara aðeins nidri í bæ og skelltum okkur svo á Amityville Horror sem er þessi fínasta hryllingsmynd. Svo fór helgin bara í lærdóm og hangs.

Okay svo verð ég að monta mig aðeins... á fimmtudaginn síðasta þurfti ég að vera með oral presentation í ensku já ÉG!!!! Þurfti að breyta position paper sem ég skrifaði fyrr á önninni í media, semsagt í auglýsingu eða eitthvað þannig og kynna það svo. Mín skoðun var að líknardráp ætti að vera löglegt og bjó ég til mjög fallegan bækling með hjálp Báru Kláru... okay svo fer ég þarna og er að deyja úr stressi því alltaf þegar ég verð óörugg hérna finnst mér ég ekki kunna að tala ensku og svo byrja ég bara að tala og tala og klára þetta bara með nokkrum sóma var mér sagt og svo fékk ég einkunnina i gær og ég fékk 93,4% eða 9,3..... hæðsta einkunnin var 95% !!! ha? sko mína..... hehe

En nóg af bladri, best að fara að einbeita sér af þessum lærdómi

Verið bless í bili og ég sé ykkur bráðum á götum Reykjavíkur... bara eitthvað, finnst ég nýkomin oh well later
                                


                                                                   

Posted at 15:29 by BjarnveigB
Comments (6)  




Friday, April 29, 2005
ammaelid buid

Ja eg atti semsagt afmaeli i gaer! Eg vil byrja a ad takka mommu og pabba, Gudrunu og fjolsk. og Evu Mariu fyrir gjafirnar... Tetta var ekkert sma flott hja ykkur ollum og nuna a eg alltof mikid nammi, sem er bara gott mmmmmm... Dagurinn i gaer var bara mjog venjulegur, vaknad klukkan 5.30 farid ad lyfta, svo skoli og svo loks aefing. Eftir aefingu budu Erna og Bara mer ut ad borda a stad sem var ad opna herna rett hja campus, mjog gott... svo forum vid til Baru tar sem voru gerd sukkuladi hudud jardaber og brownies sem er baedi uppahold hja mer!!!! Svo for eg bara snemma i rumid, eg veit ekkert mjog spennandi en tad eru bara tveir dagar eftir af soccer og svo verdur villt kvedjuparty a laugardaginn... hlakka ekkert sma til :) En eg vil bara takka fyrir allar kvedjurnar, gaman ad sja hve margir muna eftir manni... en eg aetla ad fara ad hanga a netinu tanngad til ad timinn minn byrjar, se ykkur eftir 16 daga......

p.s eg veit ad tad er pirrandi ad hafa enga islenska stafi en eg er a bokasafninu tannig ad deal with it... ;)

BB

Posted at 10:17 by BjarnveigB
Comments (4)  




Sunday, April 24, 2005
I ain´t no holla back girl....

Ohhh elska þetta lag með Gwen Stefani!!! Afhverju hélt ég alltaf að hún væri sænsk eða allavega hálf sænsk... Eva María, þú hlýtur að vita þetta.

En allavega þá var leikur í gær, unnum 3-1 og settu íslendingarnir sitthvort glæsi markið ;) Gaman að vinna loksins og nú er bara einn dauða fitness mánudagur eftir sem er frábært. Á morgun er svo sports banquet, voða gaman, allir að dressa sig upp og borða góðan mat!!!
Svo er maður bara að verða 22 ára á fimmtudaginn.... SHIT hvað maður er orðinn gamall, þetta gengur ekki, er að pæla að hafa þetta síðast afmælið mitt í svona 10 ár og eiga bara 23 ára afmæli þá, má það???? En á ammælisdaginn minn fara allir íþróttamennirnir saman í SIX FLAGS sem er risa risa risa stórt tívolí.... ég er pínu smeyk sko við stóru stóru tækin en maður má sko ekki vera minni maður en Erna og Jacopo sem eru alveg tryllt í svona tívolí þannig ég þarf víst að pína mig í þessi tæki, ég fæ ennþá martraðir frá því að ég, Linda og Villa vorum á Spáni og fórum í stærsta rússíbana í Evrópu, ha muniði?? Verst er að fara upp...svona ógó hægt og maður fattar að maður getur ekki hætt við..... og svo er þetta allt í lagi!!!!!! Ohhh ég er strax byrjuð að reyna að sannfæra mig ;)
Bara 3 vikur þanngað til að ég kem heim, þær verða væntalega fljótar að líða... samt blendar tilfinningar við að fara... get ekki beðið að knúsa og kremja alla fjölskylduna og vinkonur mínar bestustu.... hlakka svo til að eyða tíma með ykkur... samt sem áður efast ég ekki um að hugurinn eigi eftir að reika mikið til Ítalíu!!!!!!!!! Pirrrandi að þurfa alltaf að vera kveðja fólk sem manni þykir svo rosalega vænt um.....:( :(

Jæja verð að klára að læra því Blake fyrrverandi þjálfari er búin að bjóða mér, Báru, Ernu og Moran(ísraelinn í liðinu) í mat..... Það verður eitt skilyrði í þessu matarboði, það er stranglega bannað að tala um TCU Soccer... úfff það verður erfitt....  mjög týpíkst ég að klúðra þessu eitthvað... :)

Bjassí kveður í bili, sjáumst brátt

Ciao

Posted at 15:36 by BjarnveigB
Comments (14)  




Monday, April 11, 2005
Ég er ástfangin....

.....af nýja IPOD-inum mínum!!!! Hann er svo fallegur og með 1000 skemmtileg lög....

já annars hæ allir!!! Ég veit að ég hef verið glötuð í skrifum undarfarið, en öll umfram orka nei bíddu ég á enga orku eftir og dagarnir hjá mér eru nokkuð svipaðir þannig ekki margt sem ég get deilt með ykkur..... Brjálaðar æfingar og lærdómur,,, en tveir jákvæðir hlutir ég er að komast í betra form og einkunnurnar eru að hækka svolítið þannig að jejjj!!!! Svo náttla nýji ipod-inn og ítalskur tennisgaur og 30 stiga hiti og sól..... ó mæ god hvað er ég að kvarta lífið hérna er yndislegt!!! :)

En bless í bili og svo vil ég nota tækifærið og óska fallegu vinkonu minni henni ELÍNU ÖNNU til hamingju með afmælið á morgun eða þið vitið eftir hálftíma......


TIL HAMINGJU BESTA MÍN!!!!!!! MISS YA BUT SEE YA SOOOOOON...................*knús og koss*

Posted at 18:33 by BjarnveigB
Comments (4)  




Wednesday, April 06, 2005
stutt

Hi er i enskutima!! Hef ekkert ad segja nuna!! Er bara buin ad fara svo margar kvartanir!! Gott ad vita ad tid erud ad fylgjast med... ohh kennarinn er ad koma, ohh hann er ad spyrja mig af einhverju.. skil hann ekki *rodn*!!! Jaeja best ad fylgjast med.. bless

Posted at 11:05 by BjarnveigB
Comment (1)  




Sunday, March 27, 2005
Gleðilega páska!!!

Halló og gleðilega páska! Þetta er nú frekar furðulegir páskar hjá mér,  fyrstu páskar away from home..þannig mér líður ekkert eins og á páskadag, er bara að fara að læra í dag og svoleiðis. Nýji þjálfarinn kom aldeilis með trompi og ég hef aldrei hlaupið svona mikið á ævinni og jafnframt aldrei verið í jafn lélegu formi þannig þetta er þvílíkt stuð... en ég hef svo ógeðslega gott að þessu og  mér líður svo vel þegar þetta er búið. 

Enn  við erum semsagt  búnar að fá dagskrá yfir apríl og það eru hvorki meira né minna en 4 frídagar  allan apríl 2 mánudagar og 2 sunnudagar!!!!! Þannig maður mun eiga lítið líf  næsta mánuðinn...

Við íslensku stelpurrnar gerðum okkur daga  mun í gær fórum út að borða  á Joe T. sem er geggjaður  mexikanskur veitingastaður, förum svo downtown í ísbúð og bíó, sáum  Guess  who? með Ashton Kutcher og Bernie Mac.. frekar fyndin :)  Ótrúlega nice!!

                                                      GLEÐILEGA PÁSKA!!!!!


                        
                                                               
           

Posted at 09:44 by BjarnveigB
Comments (9)  




Sunday, March 20, 2005
...........


Já komin heim frá Flórída, hrein snilld þessi vika!!! Komnar myndir á 6allover síðuna og smá pistill þar. Ekket smá gaman að hitta Elsu sína og Jóa og kynnnast stelpunum Ollu, Þórunni  og Ragnheiði sem eru frábærar stelpur þrátt fyrir að vera KR-ingar :)!!! en veðrið í Tx er frábært þessa stundina miklu betra en í flórída þannig ég ætla frekar á baseball leik í sólinni helduren inn á bókasafn að læra gott hjá mér ha?? :)

Nokkrar myndir

                                                     Ég að svindla í hæ gosi! drykkjuleiknum sem við fórum í...
 Rosalega myndarlegar!!!

 Ég og Elsa mín sæt og fín!!!

 Kósý stund!!! :)

Æi kíkiði svo bara á restina ef þið viljið www.blog.central.is/6allover undir flórída....

jæja best að kíkja aðeins í bækur áðuren maður fer að njóta baseball (sætir strákar+þröngar buxur)

Kveðja BB








      

Posted at 12:03 by BjarnveigB
Comments (2)  




Wednesday, March 09, 2005
whatever!!!


Það er sem sagt búið að ráða nýjan þjálfara Dan eitthvað, og ég er ekki glöð með það!!! Ég sakna Blakes svooooo mikið... besti  þjálfari sem ég hef haft bæði utan og innan vallar :(
Okkur var tilkynnt þetta á þriðjudaginn og hefur andrúmsloftið á síðustu tveim æfingum verið frekar furðulegt, aðstoðarþjálfarinn er búin að vera með æfingarnar, svona írskur naggi sem er totally drunk with power akkurat núna eftir að Blake er farinn. Svo er Michelle aðstoðar-aðstoðarþjálfari búin að vera dugleg að láta okkur hlaupa eftir æfingarnar og hlaupin hafa eiginlega verið það skemmtilegasta við æfingarnar að þessu sinni. Við erum við að fara að hitta þennan Dan á morgun, það verður nú gaman eða þannig.. Okay allir hugsa örugglega common Bjarnveig gefðu þessum gaur séns, en þeir sem segja það skilja ekki hvað ég dýrka Blake.. þannig ekki segja það, takk!!!!!


En að allt öðru einn skóladagur og svo sweet FLÓRÍDA og hitta Elsu bestu mína :* Hlakka svooo mikið til þetta verður snilld!!!!! Ég og Erna getum ekki  hugsað annað jejjj... Verðum lentar um hádegi og þurfum að redda okkur gistingu í eina nótt og svo sækja Elsa og co okkur á laugardaginn og við förum í beach housið okkar góða...

en jæja verð að fara að gera eitthvað að viti...

já gleymdi ég og Erna fórum að skoða hús með Casey einni úr lidinu  og erum hugsanlega að fara leigja þar næsta haust en örugglega ekki samt...vá skemmtileg saga og já svo er ég líklegast að fara kaupa cell phone á morgun svo þið getið holla at me... hehe

Var að setja link á Önnu Margréti snilling og félag minn í hinu ósigrandi liði í pictunary, við erum rosalegar,ha??

Bið að heilsa í bili BÆ!!!!

Posted at 20:34 by BjarnveigB
Comments (6)  




Tuesday, March 01, 2005
Gaman


...ég var bara að labba í rólegheitunum í lunch í dag og ákveð að kíkja á pósthúsið,  bíður þar mín þessi risapakki frá elsku bestu mömmu og pabba.... fullur af ísl. NAMMi!!! Jess gaman..
Takk fyrir mig MAMMA & PABBI.. þið eruð bezt!!!

Enn ekkert að frétta, nema ég er orðin vinkona fallegasta stráksins í skólunum... hehe enga öfund!!!

Aðeins 10 days í FLÓRÍDA, baby... úff það verður nú gaman.... bæjó og já commenta takk!!! ;)


Posted at 20:09 by BjarnveigB
Comments (16)  




Sunday, February 27, 2005
Ohhh MK fílingur


ég er að fara í sögupróf á morgun og er ég búin að læra....  nei!!! Ég veit að það er enginn afsökun en ég nenni ekki að vera í svona tilgangslausum og leiðilegum tímum þannig að ég nenni ekkert að læra!!! Maður eyddi fjórum árum í MK að taka eitthvað sem maður hafði engan áhuga á og kemur svo til USA og er komin í sama pakkann!!! Arrg....

en helgin er búin að vera ágæt þrátt fyrir stresshnút í maganum útaf einhverju einu helv..  prófi!! Fórum á minningaraathöfn fyrir Molly litlu á föstudaginn, svo um kvöldið á baseball game. Í gær héngum við bara eitthvað fram eftir degi fórum á tennisleik og svo heim að hanga... Í dag verður yndislega bókasafnið heimsótt og svo bara æfing klukkan 5.30 í fyrramálið... jíbbí!!!

jæja kveð í bili úr rigningunni í TX, BB

Posted at 09:15 by BjarnveigB
Comments (4)  




Next Page

font>LINDA BESTA
KELLINGARNAR
REGÍNA DILJA
BLIKASTELPURNAR
BRIKKA KRUTT
SÓLVEIG Í DK
ANNA FLAKKARI
BÁRA FROSKUR
HÓFÍ PÆJA
ERNA MÍN
EVA RUZ BESTASTA
THE KING AND QUEEN
LILJA Í ALABAMA
ÓLÍNA
EVA SÓLEY Í NY
ANNA M. SNILLI

MYNDIRNAR MÍNAR
DIMMITERING 2003
ÚTSKRIFT 2003
MYNDIR FRÁ TEXAS
MYNDIR FRÁ TEXAS 2


   





<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30






Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed